Frí sending þegar keypt er fyrir 14.000kr. eða meira

Vöruskil

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð og í fullkomnu lagi. Vörur sem keyptar eru á útsölu eða á sérstöku tilboði fæst hvorki skilað né skipt. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Viðskiptavinur sér sjálfur um að koma vöru til okkar vegna vöruskila. Endursendingu vara skal vera send á eftirfarandi heimilisfang:

Eftirlæti ehf.
Aðalgata 4
550 Sauðárkrókur
Iceland

Haldið uppá sendingarnúmer og kvittanir sem sönnun þess að hafa sent vöruna til baka.
Endurgreiðsla verður framkvæmd þegar við fáum vöruna til baka, þangað til er varan á ábyrgð viðskiptavinar.

Við leggjum mikla áherslu á að afgreiða hágæða vöru en ef varan stenst ekki væntingar vinsamlegast hafið þá samband með tölvupósti í netfangið: eftirlaeti@eftirlaeti.com

Gölluð vara

Vinsamlegast hafðu samband við eftirlaeti@eftirlaeti.com ef vara sem þú hefur fengið frá okkur er gölluð á einhvern hátt. Sendu okkur pöntunarnúmerið, hvað er að vörunni og ef hægt er, senda myndir af gallanum.
Þegar um gallaða vöru er að ræða bjóðum við viðskiptavinum upp á að fá annað eintak af sömu vöru í staðinn og í sumum tilvikum endurgreiðslu eða afslátt. Þessi tilvik eru metin hverju sinni.
Aðeins er tekið við gölluðum vörum ef þær hafa verið notaðar eins og tilætlast er af þeim. Þetta gildir ekki um eðlilegt slit eða ef varan hefur orðið fyrir slæmri meðhöndlun að mati starfsfólks Eftirlætis.

Röng vara hefur verið send

Ef þú fékkst ranga vöru senda eða ef það vantaði vöru í sendinguna þína er best að hafa samband strax við eftirlaeti@eftirlaeti.com. Sendu á okkur pöntunarnúmer og upplýsingar um pönunina þína. Við gerum okkar besta til að leiðrétta mistökin fljótt og örugglega.

Ef eitthvað er óljóst varðandi vöruskil skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur í eftirlaeti@eftirlaeti.com.