Frí sending þegar keypt er fyrir 14.000kr. eða meira
XOXO er einstakt gjafasett með þremur mini-kertum fyrir sannkallaðan kertáhugamann. Vönduð framleiðsla sem er hugsuð til að dreifa ást og þakklæti til þinna nánustu, óháð því hvaða hátíð er í gangi.
Gjafasettið inniheldur þrjú mini kerti sem eru 107gr. og brenna í 20-25klst.
Sundays - Lavender + Apricot + Sandalwood
Rosebud - Cream + Rose + Cedarwood
Cereal - Citrus + Berry + Lemon
~ Mala vörurnar eru cruelty-free og 100% vegan. Framleiddar með hágæða blöndu af ilmefnum og ilmkjarnaolíum og eru án þalata (.phthalates) og parabena.
~ Sérblandað kókos-sojavax er hannað til að hafa hreina brennslu (það myndar ekki skaðlegan, svartan sót eins og parafínkerti) og er 100% niðurbrjótanleg, án eiturefna, úr grænmeti og endurnýjanlegri auðlind.
~ Bómullarþráðurinn í kertunum er blýlaus
~ Kertin koma í endurvinnanlegum pakkningum.
Mini / 107gr. / Brennslutími: 20-25 klukkustundir
Við hverja sölu á kerti er plantað einu tré.
Leiðbeiningar við notkun
• Við fyrstu notkun: Láttu vaxið bráðna alveg í fullan bræðslupoll til að forðast göngu myndunar (e. tunneling). Þetta tekur um.þ.b. 2 klst.
• Næstu skipti: Haltu þræðinum klipptum niður í um.þ.b. 3- 5mm. Gerðu þetta með því að klípa aðeins af krulluðum hluta svarta þráðarins, en ekki taka allan svarta hlutann! Mjög gott að nota sérstök skæri við þetta.
• Það er eðlilegt að loginn flökti svo lengi sem hann deyr ekki alveg út.
• Gott er að nota langan kveikjara og halda honum við þráðinn í um það bil 5 sekúndur til að kveikja almennilega í loganum.
Öryggi kerta
• Til að forðast eldhættu skaltu aldrei skilja eftir kveikt kerti eftirlitslaust og alltaf kveikja á kertinu á hitaþolnu yfirborði.
• Geymdu kertið þar sem það er utan seilingar eldfimra hluta, gæludýra, barna eða annars sem getur kviknað í.
• Brenndu ekki kertið lengur en í 4 klukkustundir í einu.
• Hættu að nota kertið þegar aðeins 12mm af vaxi er eftir.