Frí sending þegar keypt er fyrir 14.000kr. eða meira
Lúsameðferð er einföld og auðveld lausn til að berjast gegn lús. Á aðeins 15 mínútum eyðir varan bæði lús og eggjum. Vökvinn er mildur fyrir hársvörðinn og hárið. Eins og restin af Litlu kanínufjölskyldunni er passað vel uppá húð og hár. Kemur í hagnýtum umbúðum sem auðveldar dreifingu efnisins í hársvörðinn.
Lúsameðferðin hefur eftirfarandi vottanir:
Ofnæmisvotta - Lágmarkshætta á að fá ofnæmi.
Vegan - Engin dýr koma við sögu í hvorki framleiðslu, þróun vöru eða hráefni.
Notkun: Skref 1: Dreifðu vörunni í þurrt hár - jafnt um allan hársvörðinn og niður með hárinu. Leyfðu efninu að liggja í 15 mínútur og dreifðu svo BAD & SHAMPOO í hárið.
Skref 2: Skolið hárið með vatni. Endurtaktu skrefið með BATH & SHAMPOO eftir þörfum – þar til hárið er orðið hreint. Ljúktu meðferðinni með Hárnæringu og skolaðu síðan úr með vatni.
Skref 3: Notaðu mjóann pinna eða fingur og skiptu hárinu í hluta - notaðu lúsakamb til að greiða hárið, byrjaðu nálægt hársverðinum og dragðu kambinn niður allt hárið. Greiðið einn hluta í einu. Hreinsaðu lúsakambinn reglulega.
Skref 4: Greitt er hárið næstu daga til að koma í veg fyrir endurtekið smit. Endurtaktu meðferðina eftir 5-7 daga ef þörf krefur.