Frí sending þegar keypt er fyrir 14.000kr. eða meira

Lemon Scrub - Sítrónuskrúbbur
Lemon Scrub - Sítrónuskrúbbur
Lemon Scrub - Sítrónuskrúbbur

Pa stell

Lemon Scrub - Sítrónuskrúbbur

Venjulegt verð 4.290 kr
Með vsk. Flutningskostnaður er reiknaður þegar gengið er frá pöntun.

Náttúruleg hreinsun fyrir harða fleti

Sitrónuskrúbburinn gerir þér kleift að halda eldhúsinu, baðherberginu og sléttum flötum skínandi hreinum, án skaðlegra efna. Hann hentar jafnt til notkunar innanhúss sem utan. Notaðu hann til að pússa silfur, fjarlægja kalk í sturtu, þrífa baðkarið, helluborðið, eldhúsviftuna og ofninn. Sitrónuskrúbburinn er einnig frábær til þrifa á bátum og til að hreinsa bílfelgur.

Skrúbburinn hreinsar, pússar og fjarlægir óhreinindi á áhrifaríkan hátt án þess að rispa yfirborðið. Náttúrulegur sítrónuilmur skilur eftir ferska og hreina tilfinningu.

Sitrónuskrúbburinn er framleiddur úr 100% náttúrulegum innihaldsefnum, laus við pálmaolíu, gerviilm og sterk efni. Hann er dermatólogískt prófaður, jafnvel fyrir viðkvæma húð, og því mildur í notkun. Náttúrulegur, vegan og niðurbrjótanlegur, öruggt val fyrir þig og umhverfið.

Upplýsingar

  • 180 gr.

  • Hreinsar og pússar

  • Laus við pálmaolíu, skaðleg efni og gerviilm

  • Mildur fyrir húð – dermatólogískt prófaður

  • Lífrænn, vegan og niðurbrjótanlegur

  • Framleiddur í Þýskalandi

  • pH-gildi: 8

Vottun

  • Umhverfisvottaður af NCP

Innihaldsefni

  • 5–15% sápa

  • Plöntubundið glýserín

  • Lífræn sítrónuolía

  • Lífræn kókosolía

  • Áloxíð (alumina)

  • Sítrónusýra

Notkun

Berið Sitrónuskrúbb á með blautum svampi eða klút.
Nuddið vel.
Skolið með vatni eða þurrkið alla sápu af með rökum klút.