Frí sending þegar keypt er fyrir 14.000kr. eða meira

Lemon Foam Instant Stain Remover - Blettahreinsir
Lemon Foam Instant Stain Remover - Blettahreinsir
Lemon Foam Instant Stain Remover - Blettahreinsir

Pa stell

Lemon Foam Instant Stain Remover - Blettahreinsir

Venjulegt verð 3.790 kr
Með vsk. Flutningskostnaður er reiknaður þegar gengið er frá pöntun.

Fljótvirkur blettahreinsir

Lemon Foam er áhrifaríkur og fljótvirkur blettahreinsir í froðuformi sem fjarlægir bletti hratt af textíl sem þarf að hreinsa sérstaklega eða þolir ekki eða þarf ekki vélarþvott. Hann hentar vel á erfiða bletti eins og rauðvín á sófum og teppum, málningarbletti, pennastrik, fitu, olíu og fleira.

Einnig er auðvelt að fjarlægja drullu, óhreinindi og bletti af strigaskóm og leðurskóm á einfaldan og fljótlegan hátt. Lemon Foam má nota á ull, spariföt og viðkvæman textíl sem krefst mildrar meðhöndlunar án mikils nudds.

Úðið einungis á blettinn, nuddið létt, þurrkið strax af, og sjáið blettina hverfa!

Blettahreinsirinn er vegan, framleiddur úr náttúrulegum innihaldsefnum og mildur fyrir húðina. Hann er laus við pálmaolíu, skaðleg efni og gerviilm.

Upplýsingar
  • 115 ml

  • Hentar einnig fyrir ull

  • Laus við pálmaolíu, skaðleg efni og gervi ilmefni

  • Mildur fyrir húðina

  • Framleiddur í Noregi

  • pH-gildi: 10,6

Vottun

Þvottaefnið er vottað af Ecocert Greenlife samkvæmt ECOCERT „Ecodetergent“ staðlinum.
Nánari upplýsingar má finna á: detergents.ecocert.com

Innihaldsefni

  • 15–30% sápa

  • <5% ójónísk yfirborðsvirk efni

  • <5% amfóterísk yfirborðsvirk efni

  • Lífræn sítrónuolía

Náttúrulega sítrónuolían inniheldur limónen og sítral sem eðlilegan hluta olíunnar.
97% innihaldsefna eru af náttúrulegum uppruna.